BÓKUNARSKILMÁLAR

Við tökum á móti reiðufé, Visa, Eurocard, Mastercard, Maestro og Electron 

Afbókunargjald​:

Sé um afbókun að ræða þarf að senda skriflega tilkynningu um það eins fljótt og auðið er á [email protected]
MiniGarðurinn áskilur sér rétt til að halda eftir afbókunargjaldi eins og hér segir fyrir fyrirfram bókaða þjónustu.

Tími afbókunar - Afbókunargjald

1 - 6 dögum fyrir komu - 50% af heildarupphæð
Samdægurs - Engin endurgreiðsla

Seinkun á hópi:

Allir viðskiptavinir eru vinsamlegast beðnir um að virða bókaðan tíma. Seinkun um meira en 15 mín getur valdið því að ekki sé hægt að uppfylla þjónustuna en greiða verður fullt verð fyrir bókaða þjónustu. Ef um óhjákvæmilega seinkun er að ræða er mikilvægt að tilkynna það eins fljótt og auðið er í síma 4190000.

Almennir greiðsluskilmálar

Reikninga ber að greiða á eindaga. Reikningstímabil miðast við almanaksmánuð og er útgáfudagur reikninga í lok mánaðar. Eindagi reikninga er minnst 30 dögum eftir útgáfudag. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga skal samningsaðili greiða dráttarvexti, eins og þeir eru ákveðnir skv. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá og með eindaga til greiðsludags.

Athugasemdir við útgefna reikninga skulu gerðar án tafar og eigi síðar en á eindaga, ella telst reikningur samþykktur.